Hjólastólaróla í Kjarnaskógi

Eftirvæntingarfullir nemendur úr Giljaskóla koma til að reyna nýju hjólastólaróluna í Kjarnaskógi. M…
Eftirvæntingarfullir nemendur úr Giljaskóla koma til að reyna nýju hjólastólaróluna í Kjarnaskógi. Mynd/Skogur.is

Í Kjarnaskógi á Akureyri hefur verið útbúið nýtt samkomusvæði með grillhúsi og leiktækjum í mjög fallegu umhverfi. Svæðið heitir Birkivöllur en auk myndarlegra birkitrjáa eru þar ýmsar fleiri trjátegundir, til dæmis falleg tré af gráelri og síberíuþin svo eitthvað sé nefnt.  Í vikunni komu nemendur úr Giljaskóla ásamt kennurum sínum til að reyna hjólastólarólu sem sett hafði verið upp á Birkivelli.

Rólan gefur fötluðum börnunm færi á skemmtun sem þau hafa ekki átt auðvelt með að njóta. Aðstaða fyrir fatlaða er til fyrirmyndar á Birkivelli. Þangað er auðvelt að komast á hjólastól og fatlaðir geta þar notið náttúrunnar, legið í grasi og notið lífsins eins og annað fólk. Skógræktarfélag Eyfirðinga sér um Kjarnaskóg samkvæmt samningi við Akureyrarbæ.

Nýjast