Hjálmar læknir sendir frá sér ljóðabók

Bókin gerir tilveruna skemmtilegri
Bókin gerir tilveruna skemmtilegri

Ljóðabókin LÁN Í ÓLÁNI eftir Hjálmar Freysteinsson, lækni á Akureyri er komin út. Vísurnar eru í flestum tilfellum tengdar atburðum og umræðuefnum í samfélaginu – oftar en ekki ortar til að benda á spaugilegan flöt málanna og gera þannig tilveruna agnarlítið skemmtilegri.

 

Lítið dæmi úr bókinni:

Meðan Ólafur Ragnar lá undir feldi og hugleiddi hvort hann ætti að fara eða vera á Bessastöðum, varð jarðskjálfti á Reykjanesi. Skjálftinn var sagður sérstakur að því leyti að hann var ekki á flekaskilum. Um þetta tvennt, Ólaf og skjálftann, orti Hjálmar:

Titrar jörð í takti hröðum

tíðum kringum flekaskil,

en heilabrot á Bessastöðum

bjuggu þennan skjálfta til.

Og í einhverri sálarkreppunni hugsaði Hjálmar þetta:

Heimilislækna þú heiðra skalt,

þeir hafa flestir það orð á sér,

að vera lagnir að lækna allt,

sem lagast af sjálfu sér hvort eð er.

 

Nýjast