„ Hjá ríkisskattstjóra, góðan dag“

Gunnar karlsson / mynd karl eskil
Gunnar karlsson / mynd karl eskil

Þjónustuver ríkisskattstjóra hefur verið flutt frá Reykjavík til Akureyrar og Siglufjarðar og þar verður öllum símtölum stofnunarinnar svarað í framtíðinni. Með flutningunum fjölgar störfum á svæðinu um fimm, en þjónustuverið fyrir norðan var formlega vígt í síðustu viku.

„ Með þessum flutningum er stefnt að því að efla þjónustuverið enn frekar, þannig að hærra hlutfalli fyrirspurna verði svarað þar, án þess að fólk þurfi að leita annað. Á annatímum getur skapast mikið álag á starfsmenn og til þess að leysa þessi mál betur varð úr að skipta störfunum upp og reka þjónustuverið eingöngu á Norðurlandi. Áður sinntu starfsmenn þjónustuversins í Reykjavík einnig afgreiðslunni þar,“ segir Gunnar Karlsson sviðsstjóri einstaklingssviðs hjá ríkisskattstjóra, en hann er staðsettur á Akureyri.

 

Nánar um þetta í prentútgáfu Vikudags

Nýjast