Hitaveitubrunnar Norðurorku verða allir lagðir af

Hluti af hönnun hitaveitunnar í árdaga hennar voru svonefndir hitaveitubrunnar sem eru steinsteypt jarðhýsi þar sem ýmsar tengingar lagna koma saman, þenslustykki, kranar o.fl. Með breyttri tækni og efni eru þessir brunnar orðnir úreltir og langtímaáætlanir gera ráð fyrir því að þeir verði allir lagðir af. Smátt og smátt er því unnið að því að fjarlægja þá úr dreifikerfi hitaveitunnar. Eins og fram hefur komið í fréttum er verið að taka þrjá slíka brunna burt úr Miðbæ Akureyrar. Eins og sjá má þá eru brunnarnir  afar óheppileg vinnusvæði og það hefur sýnt sig að samsetningar í þeim geta verið afar viðkvæmar fyrir tímans tönn ekki síst ef vatn kemst ofan í brunnana.

Nýjast