Hetjurnar, félag langveikra barna á Norðurlandi, afhentu barnadeild Sjúkrahússins á Akureyri nýtt öndunartæki að andvirði ein og hálf milljón króna í dag. Tækið, sem nefnist S.I.P.A.P, nýtist aðallega nýburum sem þurfa stuðning við öndun. Við erum afar þakklát. Þetta er tímamótatæki sem mun án efa nýtast okkur vel í framtíðinni, sagði Andrea Andrésdóttir yfirlæknir á barnadeildinni við afhendinguna. Einnig gáfu Hetjurnar barnadeildinni 200 þúsund króna gjafabréf.