Hermannsmótið haldið um helgina

Skíðafélag Akureyrarhélt um helgina  Hermannsgönguna á skíðum í blíðskaparveðri í Hlíðarfjalli. Hermannsgangan er fyrsta gangan í Íslandsgöngunni svokölluðu, sem er röð almenningsskíðagangna sem fram fara á 6 stöðum á landinu. Þessir staðir eru Akureyri, Ólafsfjörður, Reykjavík, Hólmavík, Húsavík og Ísafjörður.

Í þessum skíðagöngum eru þátttakendur á öllum aldri og bæði fólk sem sækist eftir keppni og fólk sem vill fara í gönguna með það að markmiði að njóta útiveru og góðs félagskapar. Þátttakendur voru 73 í Hermannsgöngunni en hægt var að velja á milli þess að ganga 4 km, 12 km eða 24 km. Lengsta vegalengdin gefur síðan stig í Íslandsgöngunni. Sigurvegarar þar urðu Katrín Árnadóttir, Skíðagöngufélaginu Ulli og Daníel Jakobsson Skíðafélagi Ísfirðinga.

Nýjast