Menningarhúsið Hof í bauð íbúum og dagþjónustugestum Öldrunarheimila Akureyrar í heimsókn þar sem boðið var upp á fjölbreytta dagskrá. Dagskráin hófst í Hamraborg þar sem Suzukinemendur Tónlistarskólans á Akureyri léku nokkur lög. Síðan tóku við óskalagatónleikar Óskars Péturssonar og Eyþórs Inga Jónssonar þar sem gestir gátu valið úr fjölda laga.
Boðið var upp á skoðunarferð um húsið þar sem gestum gafst tækifæri til þess að skyggnast bak við tjöldin. Í Hömrum fór svo fram kvikmyndasýning á myndum teknum á Akureyri á árunum 1907-1970, en Kvikmyndasafn Íslands hefur nýverið tekið myndinar saman. Að lokum var boðið upp á kaffiveitingar og tónlistaratriði frá hjónunum Hjalta Jónssyni og Láru Sóleyju Jóhannsdóttur. Að sögn Friðnýjar B. Sigurðardóttur, þjónustustjóra Öldrunarheimila Akureyrar, var mikil ánægja með heimsóknina. Okkur fannst einstaklega vel staðið að heimsókninnni, dagskráin var fjölbreytt og skemmtileg. Hér eru allir í skýjunum-íbúar, dagþjónustugestir og starfsfólk.