„Þetta er heilmikil törn, mikil vinna sem krefst góðrar skipulagningar og þó nokkuð af vinnufúsum höndum,“ segja þær Bryndís Björk Hauksdóttir og Sigríður Ásta Pedersen sem hafa veg og vanda að viðburðinum Mömmur og möffins í ár líkt og í fyrra. Þá var þessi vinsæli viðburður færður á Ráðhústorg þar sem mannlífið kringum verslunarmannahelgina er jafnan og segja þær að vel hafi tekist til. Viðburðurinn snýst um að baka bollakökur, selja þær og gefa Fæðingardeild Sjúkrahússins á Akureyri ágóðann sem nýtist deildinni m.a. til tækjakaupa.
Þær Bryndís og Sigríður segja að nú standi yfir leit að sjálfboðaliðum sem vilji taka þátt í Mömmum og möffins í ár, en viðburðurinn fagnar 15 ára afmæli og verður af því tilefni haldið upp á þau tímamót. „Það þurfa um það bil 15 til 20 manns að taka þátt svo vel sé til að allt gangi upp hjá okkur,“ segja þær. Í fyrrasumar voru bakaðar tæplega 2.300 bollakökur og seldist hver einasta kaka. Afraksturinn nam rúmlega1,5 milljónum króna, sem er hæsta upphæð sem safnað hefur verið.
Þær segja að oft komi sama fólkið, oftast koma konurnar nokkur ár í röð og taka svo pásu. Dæmi eru um að fjölskyldur mæti og leggi hönd á plóg, en í mörg horn er að líta og fleiri verkefni en að baka bollakökur eru í boði. Hin síðari ár hafa Mömmur og möffins fengið afnot af góðri aðstöðu í heimilisfræðistofu og eldhúsi Naustaskóla og svo verður einnig í ár. Það sé mikill munur að hafa svo frábæra aðstöðu til að vinna verkið.
Með breyttri staðsetningu viðburðarins í fyrra bauð Kristjánsbakarí upp á akstur með bollakökurnar niður á Ráðhústorg og gekk það mjög vel. Var hagkvæmara og tók skemmri tíma en gamla fyrirkomulagið að flytja kökur í einkabílum sjálfboðaliða. Vona þær stöllur að sami háttur verði hafður á í sumar.
„Við erum að hefja undirbúning um þessar mundir og þetta fer ágætlega af stað, en við erum að leita að fleiri sjálfboðaliðum og tökum fagnandi á móti þeim sem vilja leggja okkur lið. Margar hendur vinna létt verk eins og þar stendur,“ segja þær Bryndís og Sigríður. Í fyrra hafi kona búsett á Egilsstöðum tekið þátt og séð um vegan bollakökur og hún muni vonandi koma norður á ný í sumar. „Pabbar eru líka velkomnir, það væri gaman að sjá fleiri karla með okkur í þessu. Þetta getur vel orðið skemmtilegt fjölskylduverkefni.“
Þær Bryndís og Sigríður segja að það sé ómetanlegt að finna þann velvilja sem verkefnið nýtur í samfélaginu. Allir eru boðnir og búnir að rétta hjálparhönd ef á þarf að halda. Bakhjarlar verkefnisins séu sterkir og styðja við bakið á þeim af krafti og þá gangi salan alltaf vel enda sé málefnið gott, fæðingardeildin eigi hjörtu svo margra.
„Verkefnið hefur um árin skilað talsverðri upphæð til deildarinnar og það hefur verið vel nýtt til kaupa á tækjabúnaði. Síðustu tvö ár hefur féð verið notað til endurbóta á setustofu deildarinnar sem enn er unnið að ,“ segja þær og hlakka til að sjá lokaútkomu.
Tvær gerðir af bollakökum hafa verið í boði, súkkulaði og vanillu og þá bættust veganbollakökur við síðar. Nú eru þær að velta fyrir sér í tilefni af því að viðburðurinn á 15 ára afmæli að auka við úrvalið og bjóða upp á gulrótar og sítrónukökur. „Það væri gaman að gera eitthvað í tilefni af afmælinu og við erum að skoða ýmsa möguleika,“ segja þær og hvetja þá sem vilja slást í hópinn að hafa samband. Hægt er að ná sambandi við þær í gegnum facebook, instagram eða netfangið mömmurogmoffins@gmail.com