Heillaði akureyrska sundkrakka

Ungur aðdáandi Jóns Margeirs skoðar Ólympíugullið. Mynd/Sævar Geir.
Ungur aðdáandi Jóns Margeirs skoðar Ólympíugullið. Mynd/Sævar Geir.

Ólympíufarinn Jón Margeir Sverrisson heilsaði upp á krakkana í Sundfélaginu Óðni á Akureyri sl. helgi. Jón Margeir, sem sigraði í 200 m skriðsundi á Ólympíuleikum fatlaðra í fyrra, kom til Akureyrar til að keppa á bikarmóti Íþróttasambands fatlaðra. Að móti loknu fengu keppendur að skoða Ólympíugullið og ræða við kappann.

„Krakkarnir fengu allir að handfjatla verðlaunin og það kom þeim á óvart hversu þungur hann var,“ segir Lísa Björk Gunnarsdóttir í stjórn Óðins og sundmamma. „Þau fengu síðan að spyrja hann út í ýmislegt sem sneri að æfingum og stórmótum. Margir af okkar yngri iðkendum fengu eiginhandaráritun og mynd af sér með Ólympíumeistaranum og ég held að þarna hafi margir eignast sinn uppáhalds sundmann á Íslandi.“

 

Nýjast