Í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar segir að heilbrigðisráðherra hafi ákveðað að sameina heilbrigðisstofnanir á landsbyggðinni þannig að ein stofnun verði í hverju heilbrigðisumdæmi eins og lög um heilbrigðisþjónustu gera ráð fyrir, þ.e. á Norðurlandi, Suðurlandi og á Vestfjörðum. Markmiðið með sameiningu er að skapa aukna möguleika á samstarfi og samnýtingu, kennslu heilbrigðisstétta og öflugri og stöðugri mönnun og að skapa sterkari rekstrar- og stjórnunareiningar. Með sameiningunni fækkar ríkisforstjórum úr níu í þrjá.