Heiðarleg samskipti fólks í makaleit

"Ég tel að það sé eftirspurn eftir þessari þjónustu hér á Akureyri og þarna skapast vettvangur fyrir fólk að kynnast á heiðarlegan hátt,“ segir Jóna Lovísa Jónsdóttir prestur, heilsumarkþjálfi og ráðgjafi hjá Sambandsmiðlun. Þann 1. mars næstkomandi mun Sambandsmiðlun bjóða upp á fyrirlestur á Akureyri undir yfirskriftinni, „Kynlíf og kurteisi“, sem fram fer á Hótel Kea. Fyrirlesari er Sigríður Dögg Arnardóttir kynlífsfræðingur og verður fyrirlesturinn öllum opinn.

Í stuttu máli byggist þjónustan á því að aðstoða fólk við að finna hina einu sönnu ást. Jóna Lovísa segir Sambandsmiðlun vera sí vaxandi fyrirtæki sem hefur að mestu verið starfandi á höfuðborgarsvæðinu en hefur verið að bæta við sig skjólstæðingum á landsbyggðinni. „Þetta er ekki opinn samskiptasíða heldur félagsskapur sem fólk gengur í. Þetta snýst um ábyrg samskipti milli fólks, þar sem bæði er boðið upp á fyrirlestra og sérstök klúbbakvöld þar sem ýmislegt verður í boði. Þjónustan er tilvalin fyrir þá sem eru þreyttir á því að þræða bari eða spjallvefi á netinu til þess að finna maka. Þarna gefst fólki tækifæri á að kynnast sem vill vera einlægt og opið í sinni makaleit."

Jóna Lovísa mun halda utan um starfsemina á Akureyri og er hægt að ná í hana í síma 894-3137. Einnig er fólki bent á heimasíðu fyrirtækisins, www.sambandsmidlun. is, þar sem finna má allar upplýsingar um skráningu og skilmála.

throstur@vikudagur.is

Nýjast