Heiðar ófærar – mokstur hafinn

Kort Vegagerðarinnar í morgun
Kort Vegagerðarinnar í morgun

 Á Norðurlandi er ófært á Öxnadalsheiði og Víkurskarði en mokstur hafinn. Ófært er einnig á Siglufjarðarvegi og Hófaskarði. Þæfingsfærð er á Þverárfjalli.

Í dag verður austlæg átt á Norðurlandi eystra, 10-15 m/sek. Frost verður á bilinu 0-7 stig.

Flugfélag Íslands hefur frestað innanlandsflugi, staðan verður metin um klukkan ellefu.

 

karleskil@vikudagur.is

Nýjast