Miðbærinn á Akureyri er stolt bæjarbúa. Hjónin Guðbjörg Inga Jósefsdóttir og Sigmundur Rafn Einarsson hafa stundað þjónustustarfsemi París, því sögufræga húsi í nærri tvo áratugi. Inga og Sigmundur hafa með hjálp afburða handverksfólks gert upp París, sem verður 100 ára á næsta ári. Í dag reka þau hjónin Götubarinn í París. Sigmundur er menntaður matreiðslumaður, byrjaði að læra á Hótel KEA árið 1966.
Reyndar var ég að hugsa um að fara í þjóninn, en atburðarásin gerði það að verkum að ég lenti í kokkanámi, jafnvel þótt ég hafi varla kunnað að sjóða egg í upphafi. Eftir ellefu ára starf á Hótel KEA færði ég mig ofar á Brekkuna og gerðist bryti hjá Menntaskólanum á Akureyri og þar var ég í heil nítján ár. Ég var með öðrum orðum í slétta þrjá áratugi yfir pottunum.
En að reka kaffihús er mikil vinna ?
Restri kaffihúss má líkja við ummönnun ungabarns, allt þarf að vera hreint og sömuleiðis þarf allt að vera ferskt. Allar kökur og tertur voru bakaðar á staðnum, þannig tryggðum við ferskleikann. Þau eru ófá tonnin af hveiti og rjóma sem hafa verið borin inn í París frá því Bláa kannan var opnuð. Inga sá um baksturinn og ég var í hreinlætisdeildinni, uppvaskinu. Þér að segja er uppvaskið eitt mikilvægasta starfið á slíkum stað. Auk þess sá ég fram í sal úr eldhúsinu og gat því fylgst með hreinlætinu þar. Ég veit ekki hversu marga bolla ég hef vaskað upp, en þeir eru klárlega nokkur hundruð þúsund.
Nánar er rætt við Sigmund í prentútgáfu Vikudags.
karleskil@vikudagur.is