Það er mikill áhugi fyrir þessari ferð og ég á von á að þátttakendur verði 25-30, segir Sigrún Björk Jakobsdóttir hótelstjóri á Icelandair Hótelinu á Akureyri. Í kvöld verður farin svonefnd hefðarferð á Súlur þar sem fetað verður í fótspor leiðangursmanna í rannsóknarferð dönsku veðurfræðistofnunarinnar sem hingað kom að áliðnu sumri árið 1988 í þeim tilgangi að rannsaka norðurljós, litróf þeirra og tengsl við veðurfræðilegar aðstæður.
Leiðangursmennirnir dönsku reistu eins konar rannsóknarstöð á í um 4000 fetra hæð á Súlum, hún var í fyrstu einungis strigatjald yfir djúpri holu þar sem fram fóru raf- og norðurljósamælingar. Um miðjan janúar árið 1900 var fimm fermetra timburkofi fluttur upp á fjallstopp og batnaði aðstaða leiðangursmanna þá til mikilla muna. Kofinn gekk undir nafninu Höllin.
Nánar um þetta í prentútgáfu Vikudags í dag