Hátt í 30 ár í bransanum

Myndbandaleigum fer ört fækkandi en Helgi Sigurðsson er þó ekki á förum. Mynd/Þröstur Ernir
Myndbandaleigum fer ört fækkandi en Helgi Sigurðsson er þó ekki á förum. Mynd/Þröstur Ernir

„Þeir eru alltaf að verða færri og færri sem gera sér ferð á myndbandaleigu í dag. Það er samt ákveðinn hópur fólks sem sækist ennþá í þetta og ennþá töluvert að gera hjá mér um helgar. Ég er enn að sjá fólk sem var að versla við mig fyrir um þremur áratugum síðan og það finnst mér afskaplega skemmtilegt,“ segir Helgi Sigurðsson sem á og rekur Sprett-Inn á Akureyri, pizzustað og myndbandaleigu.

Helgi hefur verið í leigubransanum í hátt í 30 ár og rekur nú einu myndbandaleiguna á Akureyri. Í spjalli við blaðamann Vikudags segir Helgi að með aukinni tækni sé sífellt erfiðara að halda úti leigustarfseminni.

Sautján myndbandaleigur

„Þegar ég byrja í þessum bransa fyrir tæpum þrjátíu árum síðan, árið 1984, voru sautján videoleigur á Akureyri. Ég rak m.a. þrjár Bónusvideoleigur í bænum þegar mest var í 2-3 ár. En það er erfitt að berjast við netvæðinguna, fólk er farið að niðurhala bíómyndum og þáttum í sífellt meiri mæli og svo er einnig hægt að leigja sér myndir í gegnum myndlykla. Þannig að fólk þarf í raun ekki lengur að standa upp úr sófanum ef það vill horfa á eitthvað ákveðið efni. Mér finnst þetta leiðinleg þróun,“ segir Helgi.

Hann segir reksturinn ganga ágætlega og hann sé ekkert á þeim buxunum að hætta . „En lykillinn að því að geta haldið úti myndbandaleigu í dag er að bjóða upp á aðra þjónustu líka. Leigan er aðeins um 15-20 prósent af rekstrinum en pizzurnar eru langstærsti hlutinn. Það er að verða nánast vonlaust að reka leigu eina og sér í dag og það er ein ástæðan fyrir því að þeim fer ört fækkandi.“

throstur@vikudagur.is

Nánar er rætt við Helga Sigurðsson í nýjustu prentútgáfu Vikudags.

Nýjast