Hátíðar gæsabringa

„Ég ætla að gefa ykkur uppskrift af gæsabringum sem er í matinn á aðfangadagskvöld á mínu heimili. Með gæsinni hef ég brúnaðar kartöflur, eplasalat, rifsberjahlaup og koníaks-sveppasósu,“ segir Kristín Snæbjörnsdóttir, sem sér um matarkrók vikunnar.

Beikonvafin villigæsabringa Fyrir 4

4 gæsabringur

15 beikonsneiðar

svartur pipar

Kryddið bringurnar með pipar og vefjið beikoninu utan um þær.

Hitið pönnu vel steikið bringurnar á þurri pönnunni.Leggjið þær síðan í eldfast mót og steikið í 130°heitum ofni í ca 20 mín.

Koníaks –sveppasósa

4 beikonsneiðar

10  meðalstórir sveppir

½  dl koníak

2 ½ dl villibráðasoð

2 ½  dl rjómi

½ tsk koriander

salt og pipar eftri smekk

Skerið beikonið og sveppina í hæfilega bita, setjið í pott og látið krauma þar til beikonið hefur skroppið saman og brúinast og sveppirnir brúnast, hellið koniakinu saman við og hrærið í. Bætið soðinu rjómanum og koriander saman við.þykkið sósuna eftir smekk bragðbætið með salt og pipar

 

Eplasalat.

300 gr kínakál

2 epli

150 gr mayones

180 gr sýrður rjómi

2msk sykur

1 ½ msk edik

 

Hræra saman mayonesi og sýrðum rjóma, bæta kálinu og smátt britjuðu eplinu út í svo sykurinn og edikið. Best að láta standa í kæli í 1-1 ½ klst

 

 

Ég læt fylgja með uppskrift af daim ostaköku sem er í uppáhaldi á heimilinu

 

Daim ostakaka

 

10 stk Lu-kex kökur

6 stk haustkexkökur

125 gr brætt smjör

 

400 gr rjómaostur

120 gr flórsykur

200 gr daim

¼ l  rjómi

 

kexið mulið vel niður,brætt smjörið sett saman við og sett í form,þjappið vel niður, látið kólna í svolitla stund.

 

Hrærið saman rjómaostinum og flórsykrinum ,þeytið rjómann og bætið honum saman við.Britjið daimið frekar smátt og setjið út í blönduna.Þessu er svo hellt yfir botninn, kælið.

 

Verði ykkur að góðu og gleðileg jól.

 

„Ég skora á Gunnlaug Antonsson á Dalvík að koma með eitthvað gott úr sínu eldhúsi í næsta blað.“

 

 

Nýjast