Bókasafni Háskólans á Akureyri hefur borist vegleg bókagjöf á sviði krabbameins- og líknarhjúkrunar frá fjölskyldu Hrundar Helgadóttur, hjúkrunarfræðings. Hrund lést um aldur fram árið 2011 meðan hún stundaði framhaldsnám í heilbrigðisvísindum við Háskólann á Akureyri undir leiðsögn Elísabetar Hjörleifsdóttur, dósents sem einnig er forstöðumaður námslínu í framhaldsnámi um krabbamein og líknandi meðferð við háskólann.
Bækurnar sem nýtast bæði nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri við nám, kennslu og rannsóknir fjalla um krabbameins- og líknarhjúkrun og nálgun og umönnun deyjandi einstaklinga og alla þætti sem snerta þann málaflokk. Auk þess inniheldur bókagjöfin efni um rannsóknaraðferðir og siðfræði sem nýtist vel þeim er stunda rannsóknir á öðrum sviðum, segir í tilkynningu frá háskólanum.