Háskólinn á Akureyri og Sjúkrahúsið á Akureyri hafa undirritað nýjan rammasamning um samstarf stofnananna. Stefán B. Sigurðsson, rektor Háskólans á Akureyri og Bjarni Jónasson, forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri undirrituðu samninginn 19. desember 2012.
Samningurinn tekur við af rammasamningi sem gerður var í október 2002. Samningurinn varðar áframhaldandi samstarf háskólans og sjúkrahússins um kennslu heilbrigðisstétta, endurmenntun og rannsóknir í heilbrigðisvísindum.
Við endurskoðun rammasamningsins var horft til þess að auka samstarf og rannsóknastarfsemi á sameiginlegum vettvangi háskólans og sjúkrahússins. Í samningnum er nú gert ráð fyrir því að starfsmenn sjúkrahússins geti auk akademískrar stöðu sótt um akademíska nafnbót við Heilbrigðisvísindastofnun Háskólans á Akureyri en það er vísindaleg rannsóknastofnum sem til var stofnað með fyrri rammasamningi. Þá er lögð áhersla á að þróa nám og menntun heilbrigðisstarfsfólks í þeim greinum sem mest þörf er á í dreifbýli.
Stefnunefnd sem skipuð er þremur fulltrúum frá hvorum aðila fer með yfirstjórn samningsins ásamt því að vera stjórn Heilbrigðisvísindastofnunar Háskólans á Akureyri.
Á meðfylgjandi mynd takast þeir Stefán B. Sigurðsson rektor HA og Bjarni Jónasson forstjóri Sjúkrahússins í hendur eftir undirritun samningsins.