Háskólasvæðið á Akureyri. Mynd/Hörður Geirsson.
Háskólakennarar á Akureyri samþykktu í gær nýjan kjarasamning. Niðurstaða kosningarinnar var afgerandi en 92% af þeim sem kusu sögðu já en 7% sögðu nei. Einn skilaði auðu. Á kjörskrá voru 122 og 96 sem tóku þátt.