Háskólahatíð - brautskráning

Góðvinir
Góðvinir

Í dag voru 289 kandídatar brautskráðir á Háskólahátíð Háskólans á Akureyri. Háskólaárið 2012-2013 stunduðu um 1600 nemendur nám á þremur fræðasviðum við Háskólann á Akureyri. Skipting kandídata eftir því hvort þeir voru í staðarnámi, fjarnámi eða lotunámi var eftirfarandi:

Staðarnemar: 132
Fjarnemar: 101
Lotunemar: 56

Skipting kandídata eftir fræðasviðum er eftirfarandi:

Heilbrigðisvísindasvið: 70
Hug- og félagsvísindasvið: 134
Viðskipta- og raunvísindasvið: 85

Konur eru í miklum meiri hluta þeirra sem brautskráðust eða 224 á móti 65 körlum.

Í brautskráningarræðu sinni fjallaði Stefán B. Sigurðsson rektor meðal annars um mikilvægi menntunar, eflingu fjarnáms í sítæknivæddara samfélagi, stöðu háskólans og gott samstarf opinberu háskólanna hér á landi. Einnig ræddi hann um styrka stöðu HA í norðurslóðamálum.

Viðurkenningu fyrir  góðan námsárangur (grunnám) hlutu eftirtaldir:

Auðlindafræði – Margrét Eva Ásgeirsdóttir
Félagsvísindi –
Hildur Friðriksdóttir
Kennarafræði –
Ruth Margrét Friðriksdóttir
Hjúkrunarfræði –
Heiða Berglind Magnúsdóttir
Iðjuþjálfunarfræði –  Lena Rut Olsen
Lögfræði – Elísabet Líf Magnúsdóttir
Viðskiptafræði – Steinar Örn Stefánsson

Þá var Sigrúnu Sveinbjörnsdóttir prófessor við félagsvísindadeild veitt viðurkenning fyrir afburða frammistöðu í starfi sem ekur gæði náms og kennslu.

 Góðvinir Háskólans á Akureyri, félag brautskráðra nemenda við HA og annarra velunnara háskólans veittu viðurkenningar til þeirra nemenda sem hafa verið ötulir í því að starfa í þágu háskólans svo sem með nefndarsetum og við kynningarstarf. Fjórir hlutu heiðursverðlaun Góðvina að þessu sinni, þau Dagný Linda Kristjánsdóttir (iðjuþjálfunarfræði), Justyna Wróblewska (sálfræði), Hafrún Dögg Hilmarsdóttir (sjávarútvegsfræði) og Kristín Baldvinsdóttir (viðskiptafræði).

Nýjast