Hannes Sigurðsson, forstöðumaður Sjónlistamiðstöðvarinnar á Akureyri, hefur sagt starfi sínu lausu. Hann mun fylgja sýningum þessa árs til enda, ljúka skipulagningu fyrir næsta sýningarár og ritstýra dagskrárbæklingi Sjónlistmiðstöðvarinnar fyrir næsta ár. Hann mun jafnframt verða sýningarstjóri sumarsýningar miðstöðvarinnar 2014 þótt hann muni þá hafa látið af störfum sem forstöðumaður. Samkomulag náðist um framlengdan uppsagnarfrest Hannesar svo starf Sjónlistamiðstöðvarinnar mætti verða óslitið þar til nýr forstöðumaður tekur til starfa.
Sjónlistamiðstöðin fór af stað af miklum krafti síðasta á síðasta ári og vakti mikla athygli fyrir sýningar sínar og uppátæki. Á yfirstandandi ári hefur mikil vinna verið lögð í að koma jafnvægi á rekstur miðstöðvarinnar og stendur hann nú mjög vel. Það að samkomulag náðist um að lengja uppsagnarfrestinn gerir stjórnendum málaflokksins kleift að skoða skipulag Sjónlistamiðstöðvarinnar í ljósi þeirrar reynlsu sem fengin er og endurskoða mögulega fyrirkomulagið áður en auglýst verður eftir nýjum forstöðumanni. Hvort tveggja tekur óhjákvæmilega nokkurn tíma.
Hannes hefur stýrt Sjónlistamiðstöðinni frá því hún var sett á fót í ársbyrjun 2012, en hann var áður forstöðumaður Listasafnsins á Akureyri og hefur samtals starfað í Listagilinu í rúm 14 ár. Undir hans stjórn hafa verið settar upp margar af athyglisverðustu sýningum sem sést hafa á Íslandi, segir í tilkynningu frá Akureyrarbæ.