Handtökur vegna fíkniefnaframleiðslu

Meðal staða sem lögreglan réðist í aðgerðir var á Raufarhöfn í gær.
Meðal staða sem lögreglan réðist í aðgerðir var á Raufarhöfn í gær.
Um kl. 10 í gærmorgun, 18. júní, var farið í samræmdar lögregluaðgerðir á nokkrum stöðum á landinu, m.a. á Raufarhöfn þar sem framkvæmdar voru húsleitir að undangengnum úrskurðum frá Héraðsdómi Norðurlands eystra. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Norðurlandi eystra.
 
Þar segir að lögreglan á Norðurlandi eystra hafi um nokkurt skeið unnið að rannsókn á skipulagðri brotastarfsemi sem talin er tengjast fíkniefnaframleiðslu.
Með aðgerðunum í gær hafi verið unnt að staðfesta þessar grunsemdir og er rannsókn á frumstigi. Farið verður fram á gæsluvarðhald yfir sakborningum í dag.
 
,,Í aðgerðunum var lögreglan á Norðurlandi eystra í samstarfi við lögregluna á Vesturlandi, lögregluna á höfuðborgarsvæðinu og sérsveit Ríkislögreglustjóra.
Málið er enn á viðkvæmu stigi og ekki er unnt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu," segir í tilkynningunni.

Nýjast