Halli á fyrri helmingi ársins 58 milljónir

 Í pistli Bjarna Jónassonar forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri um rekstur stofnunarinnar kemur fram að meðallegutími það sem af er ári er nú 5 dagar og hefur styst um 7% frá fyrra ári.

Sjúklingum hefur fjölgað um 8,5%, aðgerðum um 5%, fæðingum um 24% og komur á slysa- og bráðamóttöku eru 8% fleiri. 

Konur á dag- og göngudeild geðdeildar eru 37% fleiri miðað við fyrra ár og komur á dag- og göngudeild lyflækninga um 20% fleiri.

Á fyrri helmingi ársins var hallinn 58 milljónir króna, helsta ástæðan er hærri launakostnaðar en gert var ráð fyrir í upphafi.

karleskil@vikudagur.is

Nýjast