Ég íhugaði málið í nokkurn tíma og núna liggur niðurstaðan fyrir, ég ætla ekki að bjóða mig fram fyrir L-listann í næstu kosningum og læt því gott heita í bili segir Halla Björk Reynisdóttir bæjarfulltrúi L-listans á Akureyri um framboðsmál í tengslum við komandi bæjarstjórnarkosningar. Hún skipaði síðast annað sæti framboðslistans, sem náði hreinum meirihluta. Halla Björk er formaður bæjarráðs og einnig er hún formaður stjórnar Akureyrarstofu. Hún segist kveðja bæjarmálapólitíkina sátt.
Rætt er við Höllu Björk í prentútgáfu Vikudags í dag