Hálka og éljagangur

Ryðja götur Akureyrarbæjar. Mynd/Þröstur Ernir.
Ryðja götur Akureyrarbæjar. Mynd/Þröstur Ernir.

Vetrarfærð er víða um land og varar Vegagerðin við hálkublettum. Éljagangur er á Öxnadalsheiði, hálkublettir, snjóþekja og éljagangur í Eyjafirði og Skagafirði. Einnig er hálka á Holtavörðuheiði. Á Vestfjörðum er hálka eða snjóþekja á flestum vegum. Ófært er á Þröskuldum. Þæfingur er á Steingrímsfjarðarheiði, á Gemlufallsheiði og Klettshálsi. Hálka er á útvegum í Húnavatnssýslum en aðeins hálkublettir á kafla á Hringveginum.

Veðurspáin í dag samkvæmt Veðurstofu Íslands: Norðaustan- og norðanátt, víða 3-10 m/s en 8-15 m/s V-til í kvöld. Él fyrir norðan og austan en dregur heldur úr úrkomu þar í kvöld. Bjartviðri sunnan heiða, en líkur á lítilsháttar éljum yst á Reykjanesi og með S-ströndinni. Hiti kringum frostmark, en frost að 6 stigum inn til landsins.

Nýjast