Hálka er á vegum á Norðurlandi og víða éljagangur. Veðurstofan segir að á Norðurlandi eystra verði norðlæg átt 3-8 m/sek í dag, en en hægviðri og léttskýjað í kvöld. Frost 0 til 8 stig. Á morgun verður vaxandi suðaustanátt og þá á að þykkna upp og hlána.
Á föstudag:
Gengur í suðaustan 13-20 m/s með rigningu, fyrst SV-lands. Hægari og þurrt á N- og A-landi, en hvessir seinni partinn og dálítil slydda eða rigning þar um kvöldið. Hlýnandi veður, hiti 3 til 8 stig síðdegis.
Á laugardag:
Suðvestan 8-13 m/s og skúrir eða él, en léttskýjað á NA- og A-landi. Hiti 0 til 7 stig, mildast á Austfjörðum. Hægari vindur og víða frost um kvöldið.
Á sunnudag:
Snýst í fremur hæga norðanátt. Bjart með köflum, en sums staðar él við N- og A-ströndina. Hiti 1 til 7 stig yfir daginn, en næturfrost víðast hvar.
Á mánudag, þriðjudag og miðvikudag:
Útlit fyrir norðlæga eða breytilega átt. Slydda eða snjókoma með köflum og fremur kalt.