Hálka á heiðum

Víkurskarðið í morgun/vefur Vegagerðarinnar
Víkurskarðið í morgun/vefur Vegagerðarinnar

Á Norðurlandi er hálka á Holtavörðuheiði og Vatnsskarði. Hálkublettir eru á Öxnadalsheiði og á Bröttubrekku.  Krapi/snjóþekja er á Þverárfjalli, krapi/snjóþekja og éljagangur er við Ketilás.Þetta kemur fram á upplýsingavef Vegagerðarinnar.

Á Norðaustur- og Austurlandi er éljagangur og krapi/snjóþekja í Mývatnssveit, á Mývatnsöræfum, Hólaheiði, Hófaskarði og Hálsum. Krapi/snjóþekja er á Sandvíkurheiði og á Vopnafjarðarheiði. Hálka er á Möðrudalsöræfum og á Fjarðarheiði en hálka og éljagangur á Víkurskarði og Fljótsheiði. Hálkublettir eru á Fagradal, Oddsskarði og Vatnsskarði eystra.  .

Ófært er orðið á flestum hálendisvegum

Nýjast