Hagnaður fyrirtækisins varð meiri en áætlanir gerðu ráð fyrir og skýrist það að mestu af tryggingarbótum upp á 205 milljónir króna sem dótturfélagið Fallorka fékk greiddar vegna hamfaratjóns á virkjunum félagsins í Djúpadal árið 2006. Hagnaður Norðurorku árið 2011 var 473 milljónir.
Eigið fé samstæðunnar er tæpir 5,8 milljarðar króna og eiginfjárhlutfall 60%. Norðurorka greiddi niður lán á liðnu ári um rúmar 500 milljónir króna sem er nokkuð meira en undanfarin ár.
Langtímaskuldir voru í árslok tæplega 3,2 milljarðar króna og höfðu lækkað um 320 milljónir króna milli ára.
Tekjur Norðurorku voru í fyrra 2,7 milljarðar. Ráðgert er að greiða niður skuldir á þessu ári um að minnsta kosti 400 milljónir. Á aðalfundi félagsins var ákveðið að greiða 129 milljónir króna í arð til eigenda, en Akureyrarbær er langstærsti hluthafinn.