Hagnaður KEA 279 milljónir

Frá aðalfundi KEA/mynd karl Eskil
Frá aðalfundi KEA/mynd karl Eskil

„Afkoma félagsins er viðunandi í ljósi aðstæðna og þeirrar stefnu sem fylgt er við fjárfestingar og ávöxtun lausafjár. Flestir eignaflokkar gáfu ásættanlega ávöxtun,“ segja Halldór Jóhannsson framkvæmdastjóri og Hannes Karlsson stjórnarformaður í ávarpi sem fylgir ársreikningi KEA svf.

Tekjur KEA voru 443 milljónir króna í fyrra, miðað við 280 milljónir árið á undan. Hagnaður var 278,9 milljónir, en árið 2011 var hagnaðurinn 279,6 milljónir.

Samkvæmt efnahagsreikningi voru bókfærðar eignir í árslok 4,9 milljarðar. Eigið fé var 4,6 milljarðar og eiginfjárhlutfall því 94,1%.

Félagsmönnum fjölgar

Í lok ársins voru félagsmenn í KEA 18.427 talsins en voru 17.971 í upphafi árs. Félagsmönnum fjölgaði því um nærri 500. Samkvæmt víðtæækri skoðanakönnun eru um 90 % félagsmanna jákvæðir gagnvart gildandi stefnu félagsins. Samkvæmt könnun nota 83 % félagsmanna KEA kortið einu sinni eða orftar í viku og um 98 % félagsmanna hafa aðgang að kortinu. Könninin leiddi í ljós að staðgreiðsluafslættir sem félagsmenn KEA njóta eru ekki undir 350 milljónum króna á ári.

19 milljónir í styrki

KEA veitti samtals 19 milljónum króna í styrki á síðasta ári, miðað við 17 milljónir árið á undan.

Stjórn félagsins var endurkjörin á aðalfundi,  formaður stjórnar er Hannes Karlsson.

karleskil@vikudagur.is

 

Nýjast