Hagnaður Menningarfélagsins Hofs á Akureyri var 41.352 krónur á síðasta rekstrarári. Tekjur félagins voru 117 milljónir, þar af opinber framlög 55,8 milljónir. Tekjur vegna húsaleigu voru á tímabilinu 45 milljónir. Rekstur húsnæðisins kostaði 24 milljónir, en launagreiðslur námu 62 millj. króna.
Félagið greiddi 28 starfsmönnum laun á árimu. Laun og þóknanir til stjórnenda námu um 7,8 milljónum króna á reksstrarárinu.
karleskil@vikudagur.is