Hafnaði tilboði um að leiða listann

„Já, það er rétt. Ég hafnaði tilboði um að fara fyrir framboðslista Hægri grænna í Norðausturkjördæmi,“ segir Sigurður Guðmundsson bæjarfulltrúi og athafnamaður á Akureyri. Hann segir að talsmenn hreyfingarinnar hafi boðið sér sætið fyrir nokkrum vikum síðan.

„Ég leyfði mér að hugsa málið í nokkurn tíma og kynnti mér ágætlega stefanuskrá hreyfingarinar. Ég get verðið sammála mörgum þáttum sem settir eru fram í stefnuskránni, en eftir að hafa rætt við sendinefnd hreyfingarinnar, ákvað ég að fara ekki í framboð. Rekstur fyrirtækja minna er orðinn nokkuð umfangsmikill, auk þess sem ég er fyrst og fremst sveitarstjórnarmaður. Þess vegna ákvað ég að fara ekki í framboð.“

Ertu búinn að ákvaða hvaða flokk þú kýst ?

„Nei, ég hef ekki endanlega gert up hug minn, en ég fer auðvitað á kjörstað og verð örugglega búinn að ákveða mig fyrir kjördag,“ segir Sigurður Guðmundsson.

 

karleskil@vikudagur.is

Nýjast