Frjálsíþróttakonan Hafdís Sigurðardóttir og hlaupakonan Rannveig Oddsdóttir hjá UFA hafa verið valdar í nýjan Ólympíuhóp fyrir árið 2013. Það er Íþrótta-og afreksnefnd FRÍ sem stendur að valinu. Hafdís keppir í 400 m hlaupi en Rannveig í maraþoni. Aðrir í hópnum eru Blake Thomas Jakobsson, Kristinn Torfason, Óðinn Björn Þorsteinsson, Örn Davíðsson og Sveinbjörg Zophoníasdóttir FH, Einar Daði Lárusson, Guðmundur Sverrisson og Aníta Hinriksdóttir ÍR, Ásdís Hjálmsdóttir Ármanni og Kári Steinn Karlsson Breiðabliki.
Einnig var valið í landsliðshóp þar sem UFA á fimm fulltrúa. Bjarki Gíslason og Ásgerður Jana Ágústsdóttir voru valin í stökkgreinar, Rannveig Oddsdóttir í millivegalengda- og langhlaup og Kolbeinn Höður Gunnarsson og Hafdís Sigurðardóttir í sprett- og grindahlaup.