Stórir runnar sitthvoru megin á horni gatnamóta Helgamagrastrætis og Hamarstígs á Akureyri geta skapað umferðarhættu. Guðrún Björgvinsdóttir hjá Framkvæmdamiðstöð Akureyrar segir leigjendurna við Helgamagrastræti hafa fengið tiltal um að klippa runnana en ekkert gert. Í öllum svona tilvikum sendum við bréf til fólks, ef ekkert er gert klippum við runnana sjálf og sendum íbúum reikninginn, sagði Guðrún og bætti við að vandamál af þessu tagi sé víða í bænum.
Óánægð kona sem býr við Helgamagrastræti hafði samband við blaðið og vakti athygli á þessu. Hún sagði tímaspursmál hvenær stórslys eða jafnvel manntjón myndi verða ef ekkert yrði gert. Í þessu ákveðna tilviki verðar runnarnir klipptir á vegum bæjarins ef leigjendurnir trassa þetta áfram, segir Guðrún.