Hægt að sjóða egg á hverastrýtunum

Hverastrýturnar í Eyjafirði teljast einstakar því slíkar strýtur hafa hvergi annars staðar fundist á grunnsævi.Þær eiga meira skylt við laugar á lághitasvæðum en hveri háhitasvæðanna. Strýturnar eru vinsælar meðal kafara enda er hægt að skoða þessi náttúruundur með venjulegum köfunarbúnaði. Erlendur Bogason kafari á Akur eyri þekkir strýturnar eins og lófann á sér.

Hægt að sjóða egg

„Vatnið þarna er svo hreint að við höfum látið kafara taka vatn til þess að nota í kakóið er upp er komið. Þetta finnst þeim alveg stórkostlegt. Og við höfum líka látið kafara sjóða svartfuglsegg þarna niðri. Möguleikarnir í þessu efni eru nánast óþrjótandi. Stein bíturinn á þessum slóðum er orðinn vanur mannfólkinu og tekur gjarnan við kúfskel frá köfurunum. Við finnum það vel að kafarar bera virðingu fyrir þessu einstaka svæði. Að kafa niður á háhitasvæði við heimskautsbaug, þar sem sjávarhitinn er aðeins nokkrar gráður er einstök upplifun. Til dæmis að hlýja sér á höndunum þarna niðri þykir flestum hálf skrýtið og jafnvel furðulegt.“

Ítarlegt viðtal er við Erlend Bogason í prentútgáfu Vikudags

 

 

Nýjast