Gullna hliðið hlaut þrenn verðlaun

Helga Mjöll að sauma búninga fyrir Gullna hliðið í byrjun árs. Mynd/Þröstur Ernir
Helga Mjöll að sauma búninga fyrir Gullna hliðið í byrjun árs. Mynd/Þröstur Ernir

Gullna hliðið í sviðsetningu Leikfélags Akureyrar hlaut þrenn verðlaun á Grímunni, íslensku sviðslistarverðlaununum, sem veitt voru í 12. sinn í Borgarleikhúsinu í kvöld. Egill Heiðar Anton Pálsson var valinn besti leikstjórinn, Egill Ingibergsson fékk verðlaun fyrir bestu leikmynd og Helga Mjöll Oddsdóttir var verðlaunuð fyrir bestu búningana. Óper­an Ragn­heiður var sig­ur­veg­ari Grím­unn­ar og var val­in sýn­ing árs­ins, auk þess sem hún var verðlaunuð fyr­ir bestu tónlist og besta söngv­ara. Krist­björg Kj­eld hlaut Heiður­sverðlaun Leik­list­ar­sam­bands Íslands fyr­ir ævi­starf sitt í þágu sviðslista á Íslandi.

Öll verðlaun kvölds­ins:

Sýn­ing árs­ins 2014
Ragn­heiður
eft­ir Gunn­ar Þórðar­son og Friðrik Erl­ings­son
í sviðsetn­ingu Íslensku óper­unn­ar

Leik­rit árs­ins 2014
Stóru börn­in
eft­ir Lilju Sig­urðardótt­ur
í sviðsetn­ingu Lab Loka

Leik­stjóri árs­ins 2014
Eg­ill Heiðar Ant­on Páls­son
fyr­ir Gullna hliðið
í sviðsetn­ingu Leik­fé­lags Ak­ur­eyr­ar

Leik­ari árs­ins 2014 í aðal­hlut­verki
Hilm­ir Snær Guðna­son
fyr­ir Eld­raun­ina
í sviðsetn­ingu Þjóðleik­húss­ins

Leik­kona árs­ins 2014 í aðal­hlut­verki
Mar­grét Vil­hjálms­dótt­ir
fyr­ir Eld­raun­ina
í sviðsetn­ingu Þjóðleik­húss­ins

Leik­ari árs­ins 2014 í auka­hlut­verki
Berg­ur Þór Ing­ólfs­son
fyr­ir Furðulegt hátta­lag hunds um nótt
í sviðsetn­ingu Borg­ar­leik­húss­ins

Leik­kona árs­ins 2014 í auka­hlut­verki
Nanna Krist­ín Magnús­dótt­ir
fyr­ir Óska­steina
í sviðsetn­ingu Borg­ar­leik­húss­ins 

Leik­mynd árs­ins 2014
Eg­ill Ingi­bergs­son
fyr­ir Gullna hliðið
í sviðsetn­ingu Leik­fé­lags Ak­ur­eyr­ar

Bún­ing­ar árs­ins 2014
Helga Mjöll Odds­dótt­ir
fyr­ir Gullna hliðið
í sviðsetn­ingu Leik­fé­lags Ak­ur­eyr­ar

Lýs­ing árs­ins 2014
Björn Berg­steinn Guðmunds­son og Petr Hloušek
fyr­ir Furðulegt hátta­lag hunds um nótt
í sviðsetn­ingu Borg­ar­leik­húss­ins

Tónlist árs­ins 2014
Gunn­ar Þórðar­son
fyr­ir Ragn­heiði
í sviðsetn­ingu Íslensku óper­unn­ar 

Hljóðmynd árs­ins 2014
Vala Gests­dótt­ir og Krist­inn Gauti Ein­ars­son
fyr­ir Litla prins­inn
í sviðsetn­ingu Þjóðleik­húss­ins

Söngv­ari árs­ins 2014
Elm­ar Gil­berts­son
fyr­ir Ragn­heiði
í sviðsetn­ingu Íslensku óper­unn­ar

Dans­ari árs­ins 2014
Bri­an Gerke
fyr­ir F A R A N G U R
í sviðsetn­ingu Íslenska dans­flokks­ins

Dans­höf­und­ur árs­ins 2014
Val­gerður Rún­ars­dótt­ir
fyr­ir F A R A N G U R
í sviðsetn­ingu Íslenska dans­flokks­ins

Útvarps­verk árs­ins 2014
Söng­ur hrafn­anna
eft­ir Árna Kristjáns­son
Leik­stjórn Viðar Eggerts­son
Fram­leiðandi Útvarps­leik­húsið á RÚV

Sproti árs­ins 2014
Tyrf­ing­ur Tyrf­ings­son – leik­skáld
fyr­ir Blá­skjá
í sviðsetn­ingu Óska­barna ógæf­unn­ar og Borg­ar­leik­húss­ins

Barna­sýn­ing árs­ins 2014
Hamlet litli
eft­ir Berg Þór Ing­ólfs­son
í sviðsetn­ingu Borg­ar­leik­húss­ins 

Heiður­sverðlaun Leik­list­ar­sam­bands Íslands 2014
Krist­björg Kj­eld

Nýjast