Gullna hliðið í sviðsetningu Leikfélags Akureyrar hlaut þrenn verðlaun á Grímunni, íslensku sviðslistarverðlaununum, sem veitt voru í 12. sinn í Borgarleikhúsinu í kvöld. Egill Heiðar Anton Pálsson var valinn besti leikstjórinn, Egill Ingibergsson fékk verðlaun fyrir bestu leikmynd og Helga Mjöll Oddsdóttir var verðlaunuð fyrir bestu búningana. Óperan Ragnheiður var sigurvegari Grímunnar og var valin sýning ársins, auk þess sem hún var verðlaunuð fyrir bestu tónlist og besta söngvara. Kristbjörg Kjeld hlaut Heiðursverðlaun Leiklistarsambands Íslands fyrir ævistarf sitt í þágu sviðslista á Íslandi.
Öll verðlaun kvöldsins:
Sýning ársins 2014
Ragnheiður
eftir Gunnar Þórðarson og Friðrik Erlingsson
í sviðsetningu Íslensku óperunnar
Leikrit ársins 2014
Stóru börnin
eftir Lilju Sigurðardóttur
í sviðsetningu Lab Loka
Leikstjóri ársins 2014
Egill Heiðar Anton Pálsson
fyrir Gullna hliðið
í sviðsetningu Leikfélags Akureyrar
Leikari ársins 2014 í aðalhlutverki
Hilmir Snær Guðnason
fyrir Eldraunina
í sviðsetningu Þjóðleikhússins
Leikkona ársins 2014 í aðalhlutverki
Margrét Vilhjálmsdóttir
fyrir Eldraunina
í sviðsetningu Þjóðleikhússins
Leikari ársins 2014 í aukahlutverki
Bergur Þór Ingólfsson
fyrir Furðulegt háttalag hunds um nótt
í sviðsetningu Borgarleikhússins
Leikkona ársins 2014 í aukahlutverki
Nanna Kristín Magnúsdóttir
fyrir Óskasteina
í sviðsetningu Borgarleikhússins
Leikmynd ársins 2014
Egill Ingibergsson
fyrir Gullna hliðið
í sviðsetningu Leikfélags Akureyrar
Búningar ársins 2014
Helga Mjöll Oddsdóttir
fyrir Gullna hliðið
í sviðsetningu Leikfélags Akureyrar
Lýsing ársins 2014
Björn Bergsteinn Guðmundsson og Petr Hlouek
fyrir Furðulegt háttalag hunds um nótt
í sviðsetningu Borgarleikhússins
Tónlist ársins 2014
Gunnar Þórðarson
fyrir Ragnheiði
í sviðsetningu Íslensku óperunnar
Hljóðmynd ársins 2014
Vala Gestsdóttir og Kristinn Gauti Einarsson
fyrir Litla prinsinn
í sviðsetningu Þjóðleikhússins
Söngvari ársins 2014
Elmar Gilbertsson
fyrir Ragnheiði
í sviðsetningu Íslensku óperunnar
Dansari ársins 2014
Brian Gerke
fyrir F A R A N G U R
í sviðsetningu Íslenska dansflokksins
Danshöfundur ársins 2014
Valgerður Rúnarsdóttir
fyrir F A R A N G U R
í sviðsetningu Íslenska dansflokksins
Útvarpsverk ársins 2014
Söngur hrafnanna
eftir Árna Kristjánsson
Leikstjórn Viðar Eggertsson
Framleiðandi Útvarpsleikhúsið á RÚV
Sproti ársins 2014
Tyrfingur Tyrfingsson leikskáld
fyrir Bláskjá
í sviðsetningu Óskabarna ógæfunnar og Borgarleikhússins
Barnasýning ársins 2014
Hamlet litli
eftir Berg Þór Ingólfsson
í sviðsetningu Borgarleikhússins
Heiðursverðlaun Leiklistarsambands Íslands 2014
Kristbjörg Kjeld