Þau sem hlutu viðurkenningar, ásamt fulltr.Akureyrarstofu
Vorkoma Akureyrarstofu var haldin hátíðleg í Ketihúsinu í dag. Veittar voru viðurkenningar Menningar- og húsverndarsjóðs, Byggingarlistaverðlaun Akureyrarstofu og Athafna- og nýsköpunarviðurkenning Akureyrarstofu. Þá var og tilkynnt um starfslaun listamanns 2013-2014.
Starfslaunin hlýtur Guðrún Pálína Guðmundsdóttir myndlistarkona.
Hún hyggst nýta starfslaunin til að koma myndverkum sínum í bókform, fyrst og fremst teikningar og vatnslitamyndir. Hún hefur undanfarin ár unnið með myndverk sem fjalla um rannsóknir á forferðrum sínum frá og með áttundu kynslóð.
Alls voru fjórar heiðursviðurkenningar veittar úr Menningarsjóði og eru þær veittar fyrir mikilvægt framlag til menningarmála á Akureyri. Þessar viðurkenningar hlutu Gunnar F. Guðmundsson rithöfundur fyrir ævisögu Jóns Sveinssonar, Nonna, Zontaklúbbur Akureyrar, Bernharð Haraldsson fyrrum skólameistari Verkmenntaskólans á Akureyri og Saga Jónsdóttir leikkona.
Þrjár viðurkenningar voru veittar úr Húsverndarsjóði fyrir húsin að Brekkugötu 5, Hafnarstræti 107 B og Hafnarstræti 98 en allt eru þetta hús sem skipa mikilvægan sess í götumynd miðbæjarins á Akureyri.
Tvær viðurkenningar voru veittar fyrir byggingalist: arkitektastofan Kollgáta fékk viðurkenningu fyrir kaffihús í Lystigarðinum og Arkþing og Arkitema í Danmörku fyrir innra skipulag menningarhússins Hofs.
Athafna- og nýsköpunarverðlaun Akureyrar voru veitt í fjórða sinn og komu í hlut Hölds fyrir þrautseigju og góðan rekstur og fyrirtækið Seigla hlaut viðurkenningu fyrir nýsköpun og frumkvöðlastarf.
karleskil@vikudagur.is