Það eru einhverjar skemmdir á hurðinni en annars held ég að þetta hafi sloppið ágætlega, segir varðstjóri hjá lögreglunni á Akureyri í samtali við Vikudag. Kveikt var í gúmmímottum við kjalladyr í KA-heimilinu í gærkvöld og fór þykkur svartur reykur um allan kjallara hússins. Margt fólk var á staðnum sem yfirgaf húsið fljótlega eftir að kviknaði í. Slökkvilið Akureyrar var kallað út um rúmlega átta í gærkvöld en maður staddur í KA-heimilinu tókst að slökkvað eldinn.
Lögreglan rannsakar eldsupptök, en grunur leikur á að um íkveikju sé að ræða. Hins vegar er ekki útilokað að eldurinn hafi kviknað í útfrá sígarettu af slysni, segir lögreglan.