Starfsmanni við bókhald í Verkmenntaskólanum á Akureyri hefur verið vikið frá störfum vegna gruns um fjárdrátt.
Við innra eftirlit vöknuðu grunsemdir um að ekki væri allt með felldu við meðferð á fjármunum tengdum skólanum. Haft hefur verið samband við Ríkisendurskoðun og mun stofnunin rannsaka málið með stjórnendum skólans. Að því búnu verður ákveðið hvort lögð verður fram kæra.
Hjalti Jón Sveinsson, skólameistari, vildi hvorki tjá sig um hver hinn grunaði væri né hversu mikið fé væri um að ræða, þegar hann var inntur eftir því.