Grunaður um kynferðisbrot gegn barni

Karlmaður á miðjum aldri situr í gæsluvarðhaldi á Akureyri vegna gruns um kynferðisbrot gagnvart dreng yngri en 15 ára. Meint brot átti sér stað sl. fimmtudag. Sá grunaði verður yfirheyrður í dag og sleppt að þeim loknum, en hann mun ekki hafa komið við sögu lögreglu áður. Lögreglan á Akureyri vildi að öðru leyti lítið tjá sig um málið.

throstur@vikudagur.is

 

Nýjast