Það er erfitt að láta enda ná saman, það er alveg ljóst. Við ráðum hins vegar við reksturinn, svo þungur er hann ekki, segir Oddur Helgi Halldórsson bæjarfulltrúi L-listans á Akureyri, aðspurður um afkomu bæjarins á árinu.
Sex mánaða uppgjör hefur verið lagt fram í bæjarráði, en bæjarfulltrúar eru bundnir trúnaði um niðurstöðuna. Samkvæmt heimildum Vikudags er hallinn á bilinu 300 til 400 milljónir króna. Til samanburðar styrkir bærinn rekstur Hofs um 300 milljónir króna á ári.
Sigurður Guðmundsson bæjarfulltrúi Bæjarlistans segir að grípa verði til aðgerða og það strax.
Ef grípa þarf til einhverra aðhaldsaðgerða verður það gert í haust, segir Oddur Helgi.
Nánar um þetta í prentútgáfu Vikudags