Grímseyingar gefa hálfa milljón

Grímseyingar komu færandi hendi/mynd karl eskil
Grímseyingar komu færandi hendi/mynd karl eskil

„Við gerum okkur vel grein fyrir því að á þessum árstíma þarnast margir í samfélaginu aðstoðar og þess vegna erum við í Kiwanisbklúbbnum Grími í Grímsey stoltir af því að færa Mæðrastyrksnefnd Akureyrar hálfa milljón króna,“ sagði Sigfús Jóhannesson, sem er í fjáröflunarnefnd Gríms. Félagar í Grími afhentu gjöfina í morgun. „Við öflum peninga með því að halda bingó og fleira og síðast en ekki síst hefur dagatal sem við gefum út hlotið góðar viðtökur.“

Sigurveig Bergsteinsdóttir formaður Mæðrastyrksnefndar Akureyrar veitti gjöfinni móttöku. „Þessir peningar koma sér vel, enda höfum við styrkt margar fjölskyldur á svæðinu á undanförnum vikum. Grímseyingar hafa á undanförnum árum styrkt ýmis verkefni á fastalandinu, sem sýnir vel hlýhug eyjaskeggja.“

Nýjast