Grænlandsflugið fær góðar viðtökur

Friðrik Adolfsson framkvæmdastjóri Nordandair/mynd karl eskil
Friðrik Adolfsson framkvæmdastjóri Nordandair/mynd karl eskil

Nordlandair hóf í dag að fljúga beint frá Akureyri til Nerlerit Inaat flugvallarins við Scoresbysund á austurströnd Grænlands. Flugfélag Íslands hætti að fljúga til Nerlerit Inaat um áramótin og Air Greenland er með sínar höfuðstöðvar sínar á vesturströndinni og ætlar að þjóna austurströndinni þaðan stóran hluta ársins. Í ljósi þessa ákvað Norlandair að bjóða upp á beint flug frá Akureyri til Nerlerit Inaat.

Þessi nýja þjónusta Nordlandair hefur hlotið góðar viðtökur, enda hefur mikil uppbygging átt sér stað á Grænlandi á undanförnum árum.

karleskil@vikudagur.is

 

Nýjast