Göngukonan komin á sjúkrahús

Göngukonan, sem slasaðist í fjalllendi í Svarfaðardal um miðjan dag í dag, var flutt á sjúkrahúsið á Akureyri, en hún var talin vera fótbrotin.

Slysið vildi þannig til að konan, sem var á ferð með gönguhópi, rann 50 metra niður fjallshlíð.

Um 40 björgunarsveitarmenn af Norðurlandi komu til aðstoðar, þeir báru konuna niður og voru aðstæður nokkuð erfiðar samkvæmt upplýsingum frá Landsbjörgu.

Síðan voru ferðafélagar konunnar aðstoðaðir við að komast niður af fjallinu. Fólkið var vant göngufólk og vel búið, segir á mbl.is

Nýjast