Göngukona slasast i fjalllendi

Björgunarsveitir á Norðurlandi eru nú á leið í Svarfaðardal að sækja göngukonu sem slasaðist í fjalllendi. Konan, sem var á ferð með gönguhópi, er líklegast fótbrotin. Slysið vildi þannig til að konan hrasaði þegar hún var stödd um 500 m hæð í miklum bratta og rann um 50 m niður fjallshlíðina. Ferðafélagar hennar eru byrjaðir að færa hana neðar í fjallið og þannig má e.t.v. ná henni beint á sleða björgunarsveitar. Auk sleðanna, verða sendir bílar, gönguhópar og fjallabjörgunarfólk frá björgunarsveitunum.

Nýjast