Þótt golfvertíðin sé hafin fyrir sunnan víðast hvar er enn bið í að golfarar á Akureyri komist á flatirnar. Jaðarsvöllur er að verða auður eftir snjóþungan vetur en völlurinn er hins vegar mjög blautur og verður sennilega ekki opnaður fyrr en í lok maí í fyrsta lagi. Það á eftir að koma betur í ljós hvernig völlurinn kemur undan vetri, segir Steindór Ragnarsson vallarstjóri á Jaðarsvelli. Mér sýnist stóru svæðin hafa sloppið ágætlega en flatirnar eru margar svolítið laskaðar eftir klakann í vetur. Það skýrist á næstu dögum hversu miklar skemmdirnar eru.
Halla Sif Svavarsdóttir, framkvæmdastjóri Golfklúbbs Akureyrar, segir sölu á árskortum ganga vel. Golfarar eru tryggir sínu félagi og það breytist ekkert þótt völlurinn opni ekki strax. Menn eru auðvitað orðnir óþreyjufullir í að byrja að spila og farnir að bíða eftir því að komast á völlinn.
Nánar er fjallað um málið í prentútgáfu Vikudags.