Golfarar áhugasamir

Útsýnið frá Brekatúni. Mynd/SS Byggir.
Útsýnið frá Brekatúni. Mynd/SS Byggir.

„Það er mjög mikill áhugi fyrir þessu og búið frátaka fjórtán íbúðir nú þegar,” segir Sigurður Sigurðsson framkvæmdastjóri SS Byggir. Fyrirtækið sér um framkvæmdir á fjölbýlishúsi við Brekatún 2 á Akureyri sem hefjast með haustinu. Alls verða 23 íbúðir í blokkinni, sem þykir á afar hentugum stað fyrir golfara þar sem hún er staðsett rétt við golfvöllinn að Jaðri. „Það eru bæði golfarar og annað fólk sem hefur áhuga á að komast í þessar íbúðir. Það er gott útsýni yfir golfvöllinn og ýmsar gönguleiðir þarna í kring. Þannig að þetta er fín staðsetning.” Afhending íbúðanna er áætluð árið 2014.

Næg verkefni í vetur

Verkefnastaða á meðal eyfirskra verktaka er tvísýn fyrir veturinn en staða SS Byggir er hins vegar góð. „Við erum byrjaðir á framkvæmdum við gerð heilsárshúsa í Hálöndum ofan Akureyrar og förum að byrja á viðbyggingu við Háskólann. Við klárum Naustaskóla næsta vor þannig að það verður nóg að gera í vetur.”

throstur@vikudagur.is

Nýjast