"Nú líður að kosningum. Flokkar og frambjóðendur kappkosta að kynna sig og stefnumálin. Við Íslendingar eigum farsæla og dýrmæta lýðræðishefð. Við eigum líka, því miður, síversnandi umræðuhefð þar sem frambjóðendur eru gjarnan í skotlínunni," skrifar Baldvin Valdemarsson, sem skipar fimmta sæti framboðslista Sjálfstæðisflokksins á Akureyri.
Stjórnmálamenn skipta máli.
"Það skiptir máli hverjir og hverskonar einstaklingar eru valdir til forystu í samfélaginu. Góður stjórmálamaður þarf að hafa brennandi áhuga, skýra, jákvæða og uppbyggilega sýn og taka samfélagslega hagsmuni framyfir sína eigin. Ég er svo lánsamur að hafa fengið að kynnast umbuninni fyrir velheppnað starf í þágu okkar allra. Hún er fyrst og fremst sálræn en mjög raunveruleg samt sem áður," skrifar Baldvin.