Bikarmót Skíðasambands Íslands í flokki 14 - 15 ára fór fram í Böggvistaðafjalli við Dalvík um liðna helgi. Í stórsvigi sigraði Bjarki Guðjónsson frá SKA í flokki 14 ára drengja en Arnar Ingi frá SKRR í flokki 15 ára. Í flokki 14 ára stúlkna sigraði Hólmfríður Dóra frá SKRR og María Eva Eyjólfsdóttir í flokki 15 ára. Í svigi sigruðu þau María Eva, Arnar Ingi og Bjarki Guðjónsson einnig í sínum flokki en Andrea Björk Birkisdóttir frá Dalvík sigraði í flokki 14 ára stúlkna. Þetta var þriðja mótið í bikarmótaröð Skíðasambandsins en það fjórða og síðasta fer fram á Unglingameistaramóti í Oddskarði, helgina 22.-24. mars.