Vatnið í Glerá á Akureyri var vel rautt um hádegisbil í dag. Samkvæmt athugun lögreglunnar voru það starfsmenn steypustöðvarinnar Malar og sands sem skoluðu úr bíl fyrirtækisins í ána, með þeim afleiðingum að hún varð rauð um stund. Alfreð Schiöth heilbrigðisfulltrúi Norðurlands eystra segir að í áratugi hafi skolvatni úr steypuibílum verið skolað í Glerá. Akureyrarbær hafi ekki treyst sér til að taka við slíku vatni inn á bæjarkerfið vegna stífluhættu. Vonandi verði þessu hætt fyrr en seinna.